Bókunarskilmálar

Verð og afbókanir

  • Uppgefið verð miðast við eina gistinótt og er 11% vsk. innifalinn.

  • Morgunverður er ekki innifalinn í verði.

  • Ekki þarf að greiða aukalega fyrir börn 6 ára og yngri ef þau deila rúmi með foreldrum.

  • Gæludýr eru velkomin að fengnu sérstöku leyfi frá hótelinu.

  • Innritun hefst kl 15:00 á komudegi og útskráning er eigi síðar en kl: 11:00 á brottfarardegi.

  • Bókunarsamningur er bindandi fyrir báða aðila. Brjóti annar aðili samninginn ber hann þann kostnað sem af því hlýst.

  • Aðrir skilmálar gilda á bókunum á 5 eða fleiri herbergjum. Í þeim tilfellum, vinsamlegast hafið samband við móttöku í gegnum síma eða tölvupóst.

  • Hótel Búðir áskilja sér rétt til að innheimta fulla greiðslu ef gestur mætir ekki, nema hann hafi afbókað með a.m.k. 1 vikna fyrirvara.

  • Afbókun á 5–11 herbergjum er endurgjaldslaus þar til mánuði fyrir innritun, á 12–19 herbergjum þar til 3 mánuðum fyrir innritun og á 20–28 herbergjum þar til 6 mánuðum fyrir innritun.

  • Bókanir þarf að tryggja með kreditkortaupplýsingum eða fyrirframgreiðslu. Hótel Búðir taka við Visa, Eurocard, Mastercard, Maestro, American Express, JCB og Electron.

  • Óheimilt er að neyta eigin drykkja og matar í sameiginlegum rýmum Hótels Búða.

  • Umgangur eða hljóð sem geta valdið ónæði eru óheimil á herbergjum og og í sameiginlegum rýmum hótelsins eftir kl. 23:00 á kvöldin.

  • Reykingar eru ekki leyfðar á Hótel Búðum. Sektin við reykingum er fullt verð herbergis.

  • Innheimt er fyrir staðfestar bókanir nema afbókun hafi borist skv. afbókunarskilmálum.

  • Hótel Búðir áskilur sér rétt til að breyta verði fyrirvaralaust ef skattar breytast.

Hópar

Vinsamlegast hafið samband í gegnum netfangið budir@budir.is eða í síma 435 6700.