Ferðalagið

Hótel Búðir er staðsett á suðvestur hluta Snæfellsness og er í 178 km fjarlægð frá Reykjavík. Aksturstími er því einungis tvær klukkustundir á hótelið þar sem þú getur notið góðs matars, fagurs umhverfis og alls þess sem næsta nágrenni bíður upp á. 

Ekið er frá Reykjavík til Borgarness (þjóðvegur nr. 1). Á leiðinni ferðu um Hvalfjarðargöng og í gegnum Borgarnes og áfram vestur, til vinstri úr hringtorgi við verslun Húsasmiðjunnar. Ekið er um þjóðveg nr. 54 í átt að Stykkishólmi. Við gatnamótin við Vegamót, þar sem vegurinn til Stykkishólm liggur norður Vatnaleið (nr. 56) er haldið áfram út og vestur nesið (nr. 54).

Þegar komið er að Fróðárheiði er beygt til vinstri og ekið eftir þjóðvegi nr. 574 í átt að Arnarstapa. Skammt eftir þá beygju er afleggjarinn að Búðum á vinstri hönd.

Akið varlega, góða ferð.