MINNI SVÍTUR
Á hótelinu má finna þrjár minni svítur. Ein þeirra er staðsett í gömlu álmunni og samanstendur af svefnherbergi og stofu auk baðherbergis. Hinar tvær eru í nýju álmunni og þar eru svefnaðstaða og stofa í sama rými. Tvíbreitt rúm er í öllum svítum, en mögulegt er að bæta við tveimur samanbrotnum rúmum gegn gjaldi og verður þá svefnpláss fyrir fjóra gesti í svítunni. Óska skal sérstaklega eftir því þegar herbergi er bókað. Athugið að ekki er hægt að óska sérstaklega eftir svítu í gömlu eða nýju álmunni.